Áhrif á ársreikning Stjörnunnar

Ég skilaði nýverið inn BSc ritgerðinni minni sem ber heitið Eignfærsla leikmannasamninga í ársreikningum íslenskra knattspyrnuliða. Viðfangsefni ritgerðarinnar er undanþága sem KSÍ fær frá reikningsskilareglum UEFA varðandi eignfærslu leikmannasamninga í ársreikningum. Á grundvelli undanþágunnar er svokallað stuðlakerfi notað sem leið til þess að verðmeta leikmenn í ársreikningum íslenskra knattspyrnuliða. Í ritgerðinni var leitast við að svara þremur rannsóknarspurningum:
- Hvaða áhrif hefur stuðlakerfið á ársreikninga íslenskra knattspyrnufélaga?
- Er stuðlakerfið í samræmi við lög og reglur?
- Er stuðlakerfið nauðsynlegt fyrir íslensk knattspyrnufélög?
Í stuttu máli þá hefur stuðlakerfið víðtæk áhrif á ársreikningana, en þó er fjárhæðirnar sjálfar óverulegar. Einnig var það niðurstaða mín að stuðlakerfið væri ekki í samræmi við ársreikningalögin né alþjóðlega reikningsskilastaðla. Loks tel ég að stuðlakerfið sé ekki nauðsynlegt fyrir íslensk knattspyrnufélög og að KSÍ þurfi að hætta með undanþáguna og aðlaga sig að reikningsskilareglum UEFA.
Næstu daga mun ég birta búta úr ritgerðinni.
Áhrif á ársreikning Stjörnunnar árið 2024
Í ársreikningi Stjörnunnar fyrir árið 2024 voru leikmannasamningar eignfærðir á 7.900.000 krónur, allir samkvæmt stuðlakerfinu. Hlutfall leikmannasamninga af heildareignum Stjörnunnar er núna 4,7% en ef eignfærsla leikmannasamninga hefði verið færð samkvæmt reikningsskilareglum UEFA þá væri hlutfall leikmannasamninga af heildareignum 0%. Það er vegna þess að félög geta gjaldfært leikmannakaup samkvæmt reikningsskilareglum UEFA og því gerir höfundur ráð fyrir því að félagið muni halda því áfram (Stjarnan, 2024).
Ólíkt hinum félögunum sem hafa verið rannsökuð í þessari ritgerð þá myndu afskriftir í rekstrarreikningnum ekki breytast neitt með reikningsskilareglum UEFA þar sem Stjarnan hefur enga leikmannasamninga í efnahagsreikningnum til þess að afskrifa af því leikmannakaup þeirra eru gjaldfærð.
Eignirnar myndu lækka um 7.900.000 krónur og fara úr 168.989.273 krónum niður í 161.089.273 krónur. Þessi lækkun á eignum nemur 4,7%.
Eigið fé myndi lækka um 7.900.000 krónur í heildina. Lækkunin skiptist annars vegar í lækkun upp á 5.600.000 krónur á endurmatsreikningi leikmanna, sem myndi þurrkast út algjörlega. Hins vegar myndi óráðstafað eigið fé lækka um 2.300.000 krónur. Heilt yfir þá færi eigið fé úr því að vera 111.119.214 krónur niður í 103.219.214 krónur. Þessi lækkun eigin fjár nemur 7,1%. Samtals eigið fé og skuldir færu þá úr því að vera 168.989.273 krónur niður í 161.089.273 krónur en sú lækkun nemur 4,7%.
Þar sem leikmannakaup Stjörnunnar eru gjaldfærð þá myndi engin hreyfing eiga sér stað í sjóðstreyminu með reikningsskilareglum UEFA.
