Allt það sem gerist utan vallar á Ofurskálinni

Allt það sem gerist utan vallar á Ofurskálinni

Seattle Seahawks og New England Patriots mætast í Ofurskálinni ár en leikurinn fer fram á Levi's Stadium, heimavelli San Francisco 49ers, sem er staðsettur í borginni Santa Clara í Flóasvæðinu í Kaliforníu. Levi's völlurinn var síðast notaður í Ofurskálinni fyrir tíu árum síðan þegar Denver Broncos stóðu uppi sem sigurvegarar en þeir höfðu betur gegn Carolina Panthers.



Efnahagsleg áhrif Ofurskálarinnar

Viðburðanefnd Flóasvæðisins (e. Bay Area Host Committee) lét Boston Consulting Group skrifa skýrslu um efnahagsleg áhrif Ofurskálarinnar. Samkvæmt skýrslunni er talið að efnahagsleg áhrif Ofurskálarinnar fyrir Flóasvæðið sé á bilinu 370-630 milljónir dollara, tæpir 45-77 milljarðar króna. Áætlað er að stærsti hluti þess renni til San Francisco sýslunnar, á bilinu 250-440 milljónir dollara eða rúmlega 30-54 milljarðar króna. Efnahagsleg áhrif á Santa Clara sýsluna eru talin vera 100-160 milljónir dollara, ríflega 12-20 milljarðar kóna. Þá er talið að á bilinu 20-30 milljónir dollara, 2-4 milljarðar króna, renni til hinna sjö sýslanna sem eru á Flóasvæðinu.

Atvinnutekjur á Flóasvæðinu vegna Ofurskálarinnar verða tæplega 300 milljónir dollara eða ríflega 37 milljarðar króna. Talið er að Ofurskálin muni laða að sér hátt í 90 þúsund ferðamenn á Flóasvæðið. Þá er áætlað að tæpar 16 milljónir dollara, ríflega 2 milljarðar króna, muni renna til stjórnvalda á Flóasvæðinu í formi skatttekna.

Ofurskálin fór síðast fram á Levi's vellinum árið 2016 og eftir leikinn var unnin skýrsla á efnahagslegum áhrifum viðburðarins. Þar var talið að efnahagslegu áhrifin fyrir Flóasvæðið hefðu verið að lágmarki 240 milljónir dollara, rúmlega 29 milljarðar króna á núverandi gengi.

Auglýsingaplássið kostar hátt í milljarð króna

Auglýsingar spila stóra rullu í Ofurskálinni en meðalverð 30 sekúndna auglýsingapláss er tæplega 8 milljónir dollara í ár, ríflega 1 milljarður króna. Á þeim tíu árum sem hafa liðið frá því að Ofurskálin var síðast haldin á Levi's vellinum hefur meðalverðið á 30 sekúndna auglýsingaplássi hækkð um liðlega 78%. Ekkert lát er á hækkunum á auglýsingaplássunum en á hverju ári má sjá síhækkandi fjárhæðir nefndar.

Þar að auki ausa fyrirtækin oft miklum pening í framleiðslu á auglýsingunum. Fjölmargar stórstjörnur leika í auglýsingum fyrir Ofurskálina á hverju ári. Þegar uppi er staðið getur kostnaðurinn við það að auglýsa í Ofurskálinni hlupið á tugum milljónum dollara. Talið er að dýrasta auglýsingin sem hefur verið framleidd fyrir Ofurskálina sé auglýsingin Amazon frá árinu 2022. Því hefur verið haldið fram að hún hafi kostað 26 milljónir dollara, en það eru tæplega 3 milljarðar króna. Umtalið og áhorfið getur þó orðið talsvert, og sumar auglýsingar lifa jafnvel lengi í manna minnum.

Borga tvo milljarða króna á ári fyrir nafnaréttinn

Líklega er hagstæðasta auglýsingaplássið á Ofurskálinni að finna í nafninu á vellinum en hann hefur borið nafn gallabuxnaframleiðandans Levi Strauss allt frá því að völlurinn var tekinn í notkun árið 2014. Fyrsti samningurinn var til 20 ára og var heildarvirði hans talið vera 220 milljónir dollara. Samningurinn var hins vegar endurnýjaður árið 2024 til tíu ára en í tilkynningu Levi's var sagt að heildarvirði hans væri 170 milljón dollara sem gera 17 milljónir dollara á ári, tæplega 2 milljarðar króna. Það má leiða líkur að því að í allri umfjöllun fyrir og eftir leik, og einnig í sjónvarpsútsendingunni sjálfri af leiknum verði ansi oft nefnt að leikurinn fari fram á Levi's vellinum.

Völlurinn var opnaður sumarið 2014 eftir tæplega tvö ár af framkvæmdum en kostnaðurinn hljóp á 1,3 milljörðum dollurum, rúmlega 159 milljarðar króna á núverandi gengi. Levi's völlurinn var valinn til þess að halda Super Bowl LX fyrir tæplega þremur árum síðan. Völlurinn verður síðan aftur í sviðsljósinu næsta sumar á heimsmeistaramóti karla í fótbolta en samtals munu sex leikir fara fram á vellinum.

Neysla og eyðsla Bandaríkjamanna vegna leiksins

The National Retail Federation hefur í nærri tvo áratugi staðið fyrir könnun sem mælir eyðslu Bandaríkjamanna vegna leiksins um Ofurskálina. Á síðasta ári var talið að Bandaríkjamenn eyddu í heildina 18,6 milljörðum bandaríkjadala vegna leiksins. Það eru ríflega 2.300 milljarðar króna, en til samanburðar eru heildarútgjöld ríkissjóðs 1.620 milljarðar króna fyrir árið 2026. Eyðsla bandaríkjamanna út af þessum eina íþróttaleik er því 43% meiri en útgjöld íslenska ríkisins á einu ári. Sé horft á meðaleyðsluna vegna leiksins var talið að hver og einn bandaríkjamaður eyddi tæplega 92 dollurum, 11 þúsund krónur, vegna leiksins sem var haldinn í fyrra. Stærsti hluti þeirrar fjárhæðar fer í matvöru og drykki, enda eru veitingar oft á tíðum afar veglegar í áhorfspartýum í heimahúsum fólks.

Ein matvara sem nýtur vinsælda við matarhlaðborð Bandaríkjamanna vegna leiksins eru kjúklingavængir. Hagsmunasamtök kjúklingaframleiðenda í Bandaríkjunum, The National Chicken Council, hefur síðustu ár birt skýrslu í aðdraganda leiksins þar sem greint er frá áætluðum neyslutölum á kjúklingavængjum. Fyrir leikinn í fyrra var áætlað að 1.470 milljónir kjúklingavængja myndi enda í svöngum mögum Bandaríkjamanna. Þessi neysla hefur mjakast statt og stöðugt upp á við frá því að hagsmunasamtökin byrjuðu að taka saman þessar tölur árið 2012. Þá var áætlað að 1.250 milljónir kjúklingavængja yrði étnir vegna leiksins, vöxturinn hefur því verið 17,6% á öllu tímabilinu eða tæplega 1,3% á ári.

Bandaríkjamenn eru einnig matgírugir í snakk. Alþjóðleg hagsmunasamtök snakkframleiðenda, SNAC International, hafa undanfarin ár tekið saman söluaukningu á snakki í þeirri viku sem Ofurskálin fer fram í. Árið 2024 jókst heildarsalan um 670 milljónir dollara, tæplega 82 milljarðar króna, en sú snakkundirtegund sem jókst mest í sölu voru tortilla flögur. Salan á þeim jókst um 31,7% í vikunni sem Ofurskálin fór fram í, samkvæmt tölum frá SNAC International. Hinn sígildi makker tortilla flögunnar er án efa guacamole, enda eykst sala á avókadóum í þeirri viku sem Ofurskálin fer fram í. Hagsmunasamtök Hass-avókadó afbrigðisins, Hass Avocado Board, birtir einnig árlega skýrslu í tengslum við Ofurskálina. Samkvæmt þeirra úttekt voru tæplega 65 milljón stykki af Hass-avókadóum seld fyrir tæplega 74,4 milljónir bandaríkjadala í vikunni sem Ofurskálin var haldin árið 2025.

Það er ljóst að neyslan vestanhafs í kringum leikinn er afar mikill, enda um að ræða einn stærsta viðburð hvers árs í Bandaríkjunum. Það eftirtektaverða kann þó að vera hin óendanalega flóra af hagsmunasamtökum sem birta úttektir vegna Ofurskálarinnar. En þó, hví ekki að koma sínum hagsmunum og málsstað á framfæri á þeim vettvangi þar sem öll augu hvíla.



Samfélagsmiðlar

facebook.com/utanvallar

linkedin.com/company/utanvallar

instagram.com/utanvallar

tiktok.com/@utanvallar

x.com/utanvallar