ÍA fékk 100 milljónir króna fyrir leikmannasölur árið 2025

ÍA fékk 100 milljónir króna fyrir leikmannasölur árið 2025

Aðalfundur Knattspyrnufélagsins ÍA var haldinn í gær þar sem ársreikningurinn fyrir árið 2025 var birtur. Fjárhagslega eru eflaust fá félög betur stödd en ÍA.

Greinin var einnig birt á fotbolti.net



Rekstrartekjur

Rekstrartekjur ÍA námu 526 milljónum króna á síðasta ári, að meðtöldum leikmannaviðskiptum. Tekjur félagsins hafa vaxið gríðarlega mikið á síðustu fimm árum en tekjurnar hafa nánast tvöfaldað á þeim tíma. Stærsti hluti rekstratekna ÍA koma frá tveimur tekjuliðum. Annars vegar er það tekjuliðurinn Styrktaraðilar, tæplega 26% af rekstrartekjunum, en þessi tekjuliður er sundurliðaður betur í skýringum ársreikningsins. Hins vegar er það tekjuliðurinn leikmannaviðskipti, tæplega 19,1% af rekstratekjunum, enda er Skaginn þekktur fyrir að hafa alið af sér fjölmarga hæfileikaríka leikmenn.

Skipting rekstrartekna ÍA 2021-2025.

Í skýringum ársreikninga ÍA má finna sundurliðun á tekjuliðnum Styrktaraðilar. Tekjuliðurinn er sundurliðaður í fimm undurliði: Styrktaraðilar, Akraneskaupstaður, Sterkir Skagamenn, Íþróttabandalag Akraness, og Aðrir styrkir og framlög. Tekjur ÍA af styrktaraðilum nam 138,7 milljónum króna á síðasta ári og hefur þessi tekjuliður vaxið um 73,1% á síðustu fimm árum.

Hvað undurliðina varðar þá má sjá að tæplega tveir þriðju hlutar af þessum tekjum komu í ár frá undirliðnum Styrktaraðilar. Þá koma ríflega 20% af þessum tekjum frá Akraneskaupstað og hinir undurliðirnar þrír eru allir undir 5% mörkunum og því nokkuð veigalitlir einir og sér.

Skipting tekjuliðarins Styrktaraðilar í rekstrarreikningi ÍA 2021-2025

Í ársskýrslu ÍA eru 16 lögaðilar tilgreindir sem þeir sem styrkja ÍA hvað mest. Nokkur þessara fyrirtækja hafa auðvitað starfsemi á Akranesi eða þá nálægt bænum. Önnur er stórfyrirtæki með enga beina tengingu við Akranes, að mér vitandi, en styrkja eflaust íþróttahreyfinguna með margvíslegum hætti. Það áhugaverðasta er þó að sjá Flóki Invest ehf. á þessum lista en það félag er í 92,5% eigu Róberts Wessman, hvaðan sú tenging kemur er óljós.

Úr ársskýrslu ÍA 2025.

Á síðustu fimm árum hefur ÍA fengið hátt í 394 milljónir króna fyrir leikmannaviðskipti. Árið 2025 fékk félagið rúmlega 100 milljónir króna. Á árinu seldi félagið til að mynda Hinrik Harðarson til Odd í Noregi. Síðan hefur ÍA einnig góður fjárhæðir fyrir prósentur af næstu sölu, til dæmis í tilviki Hákons Arnars Haraldssonar.

Samstöðubætur virðast þá ekki vera flokkaðar undir þessum tekjulið heldur undir öðrum rekstratekjum. Á síðasta ári námu samstöðubætur ÍA 39,2 milljónum króna.

Sundurliðun úr skýringum í ársreikningi ÍA 2025.

Rekstrargjöld

Rekstrargjöld ÍA voru 376,7 milljónir króna á síðasta ári og hafa vaxið um 93,5% frá árinu 2021, sem er eilítið minna en vöxtur rekstratekna sem nemur 98,7% á sama tímabili. Stærsti hluti útgjaldanna fara í launa- og verktakagreiðslur sem eru tæplega 55% af útgjöldum ÍA.

Skipting rekstrargjalda ÍA 2021-2025.

Laun og launatengd gjöld ÍA hafa vaxið verulega frá árinu 2021, en vöxturinn nemur 154,1%. Vöxturinn á verktakagreiðslum, afreksstyrkjum og tengdum kostnaði hefur þó vaxið töluvert hægar, allt að 24,6%.


Afkoma

Ef við rúllum yfir rekstrarreikninginn hjá ÍA þá má sjá að rekstrarafkoman er neikvæð upp á ríflega 50 milljónir króna. En þegar leikmannaviðskipti og fjármagnsliðir bætast við sveiflast rekstrarafkoman upp á við um hátt í 105 milljónir króna og nemur afkoma ársins tæplega 54,1 milljón króna.

Ef litið er á uppsafnaða rekstrarafkomu síðustu fimm ára má sjá að hún er neikvæð upp á 182.961.749 krónur. Öll árin hefur rekstrarafkoman verið röngu megin við núllið. Hins vegar hefur ÍA alltaf fengið tekjur fyrir leikmannaviðskipti á hverju ári. Þegar öllu er á botninn hvolft þá nemur uppsöfnuð afkoma 227.943.721 krónum, sem er sveifla upp á við um hátt í 411 milljónir króna.


Eignir

ÍA átti eignir upp á 251,4 milljón króna í lok síðasta árs. Tæplega helmingur eignanna eru rekstrarfjármunir sem eru að langmestu leyti fasteignir. Þar á eftir koma viðskiptakröfur og aðrar skammtímakröfur, sem eru tæplega fjórðungur af eignum ÍA. Eignfærðir leikmannasamningar námu þá 12,9 milljónum króna en samkvæmt skýringunum voru 11,5 milljónir eignfærðar í nýjum leikmönnum á árinu. Einnig má sjá að ÍA greiddi 2,2 milljónir króna til umboðsmanna á árinu.

Skipting eigna ÍA 2021-2025.
Úr skýringum í ársreikningi ÍA 2025.
Úr skýringum í ársreikningi ÍA 2025.

Handbært fé ÍA hækkaði um 30,8 milljónir króna á árinu og stóð í tæplega 31,7 milljónum króna á síðasta ári. Í sjóðstreymisyfirlitinu má sjá að þessa hækkun má rekja til fjárfestingarhreyfinganna, nánar tiltekið leikmannaviðskiptin. Veltufé til rekstrar nam 39,3 milljónum króna, og breyting á rekstrartengdum eignum og skuldum var neikvæð upp á 13,3 milljónir króna. Þar af leiðandi var handbært fé til rekstrar 52,6 milljónir króna. Fjárfestingarhreyfingarnar voru hins vegar 92,5 milljónir króna, sem stafar af 100 milljón króna leikmannaviðskiptum og 11,5 milljónum krónum sem var eytt í kaup á leikmönnum. Loks voru fjármögnunarhreyfingar neikvæðar upp á 9,1 milljón króna.

Sjóðstreymi ÍA 2025.

Efnahagsreikningurinn hjá ÍA er verulega sterkur um þessar mundir. Ef litið er á veltufjárhlutfall félagsins má sjá að það nemur 625,4% sem er gríðarlega gott fyrir knattspyrnufélag á Íslandi.


Skuldir

Skuldir ÍA lækkuðu um 13,5 milljónir króna á milli ára og stóðu í 16,3 milljónum króna í árslok 2025. Félagið greiddi niður 9 milljón króna yfirdrátt sem var tekinn árið 2024. Eins og staðan er í dag þá nær handbært fé ÍA að dekka af allar skuldir félagsins, sem er vel af sér vikið.

Skipting skulda ÍA 2021-2025.

Skuldahlutfall ÍA lækkaði um 7,6 prósentustig á milli ára og stendur núna í 6,5%. Það er líklega lægsta skuldahlutfall sem knattspyrnufélag er með á Íslandi, í það minnsta miðað við 2024 ársreikninga annara félaga.

Eigið fé

Eigið fé ÍA hækkaði um 53,1 milljónir króna á milli ára og stóð í 235,2 milljónum króna í árslok 2025. Eigið fé ÍA hefur hækkað um 971% frá árinu 2021 sem er stjarnfræðilega mikill vöxtur. Eina knattspyrnufélagið með meiri vöxt á eigið fé sínu en þetta er Víkingur sem er með 1294% vöxt frá 2021-2024.


Ársreikningur ÍA 2025



Samfélagsmiðlar

facebook.com/utanvallar

linkedin.com/company/utanvallar

instagram.com/utanvallar

tiktok.com/@utanvallar

x.com/utanvallar