Landsliðakostnaður KSÍ var 1,1 milljarður króna á síðasta ári
KSÍ hefur birt ársreikninginn sinn fyrir árið 2025 í aðdraganda 80. ársþingsins sem fer fram á Egilstöðum þann 28. febrúar næstkomandi. Á næstu dögum verða birtar nokkrar greinar þar sem rýnt verður í tölurnar.
Greinin var einnig birt á fotbolti.net
Rekstrargjöld
Rekstrargjöld KSÍ voru samtals 2.243 milljónir króna á síðasta ári og hafa aldrei verið hærri, en þó eru rekstrargjöld ársins 2016 hærri að raunvirði. Rekstrargjöldin hækkuðu um 275 milljónir króna á milli ára, sem er hækkun upp á 14,0%. Þá gerðu áætlanir KSÍ ráð fyrir því að rekstrargjöldin myndi vera 1.963 milljónir króna, og voru þau því 14% umfram áætlanir KSÍ. Það sem skeikaði hvað mest í áætlun KSÍ var kostnaður við landslið en það er einmitt stærsti útgjaldaliður knattspyrnusambandsins, tæplega 49,4%.

Kostnaður við landslið
Áætlanir KSÍ gerðu ráð fyrir því að kostnaður við landslið myndu vera 949 milljónir króna en voru í raun 1.108 milljónir króna í árslok 2025, 16,8% umfram áætlun. Í greinargerð sem fylgdi með ársreikningnum kemur fram að ástæðan fyrir þessu er sú að kostnaður við þátttöku A-landsliðs kvenna á EM 2025 var ekki tekinn með inn í rekstraráætlun KSÍ fyrir árið 2025. Það er athyglisvert þar sem kvennalandsliðið tryggði sér þátttökurétt á EM sumarið 2024. Þá gerði rekstraráætlunin heldur ekki ráð fyrir tekjum af EM. Samkvæmt greinargerðinni var kostnaður við þátttöku á mótinu samtals 229 milljónir króna en tekjurnar voru þó nokkuð hærri, ríflega 290 milljónir króna, og því græddi KSÍ 61 milljón króna af þessu móti.

A-landslið kvenna var dýrasta landsliðið í rekstri á síðasta ári fyrir KSÍ en útgjöldin tengt því landsliði voru 418 milljónir króna. Af því voru 228 milljónir króna vegna þátttöku á EM um sumarið. Kostnaðurinn við kvennalandsliðið var 37,7% af heildarkostnaði við landsliðið KSÍ í fyrra.

Kostnaður við hvert landsliðið er skipt niður í þrjá undirliði og þar er dýrasti liðurinn ferðakostnaður. Á síðasta ári nam ferðakostnaður allra landsliðanna samtals 488 milljónum króna. Það eru tæplega 21,8% af heildarútgjöldum KSÍ.
Mótakostnaður
Kostnaður KSÍ vegna mótahalds var samtals 303 milljónir króna árið 2025 og hækkaði um 15,6 milljónir króna á milli ára, sem er hækkun upp á 5,4%. Þessi útgjaldaliður nemur 13,5% af heildarútgjöldum KSÍ. Á síðasta ári fóru fram 6.195 KSÍ leikir og meðalkostnaðurinn á leik er því rétt undir 49 þúsundum króna.
Af þessum 303 milljónum króna mótakostnaði fóru 243 milljónir króna í dómarakostnað. Af þessum 243 milljón króna dómarakostnaði greiddu aðildarfélögin 43 milljónir króna, sem er tæplega 17,9% af þessum kostnaði. Árið 2024 greiddi aðildarfélögin 12,0% af dómarakostnaðinum.
Laun og launatengd gjöld
Laun og launatengd gjöld KSÍ námu 347 milljónum króna á síðasta ári og jukust um 14,5 milljónir króna á milli ára, sem er aukning upp á 4,4%. Launahlutfallið hjá KSÍ var 14,8% og lækkaði um 1,7 prósentustig á milli ára þar sem það var 16,5% árið 2024.