Milljarðarnir flæða inn í Formúlu 1

Milljarðarnir flæða inn í Formúlu 1

Nýtt tímabil í Formúlu 1 hóst þann 8. mars með ástralska kappakstrinum sem haldinn er í Melbourne. Lando Norris er ríkjandi heimsmeistari ökuþóra og liðið sem hann keyrir fyrir, McLaren, eru ríkjandi heimsmeistarar bílasmiða. Það hefur ýmislegt gerst síðustu mánuði í kappakstursheiminum. Liðunum á kappakstursbrautinni hefur verið fjölgað og eru nú ellefu talsins og nýleg sala á hlut í Mercedes Benz sýnir okkur að virði liðanna hefur margfaldast síðustu árin svo einhver dæmi séu nefnd.



Virði Mercedes Benz Formúlu 1 liðsins hefur sexfaldast á 5 árum

Í nóvember síðastliðnum keypti George Kurtz, forstjóri og stofnandi netöryggisfyrirtækisins CrowdStrike, 15% hlut í fjárfestingarfélagi Toto Wolff en hann er framkvæmdastjóri Mercedes Benz Formúlu 1 liðsins. Fjárfestingarfélag Toto Wolff á þriðjungshlut í Formúlu 1 liði Mercedes Benz. INEOS, fjárfestingafélag Jim Ratcliffe, á svo annan þriðjungshlut í liðinu og Mercedes Benz sjálfir eiga svo síðasta þriðjungshlutann. George Kurtz keypti því í reynd 5% hlut í Mercedes Benz liðinu.

Kaupverðið sem Kurtz greiddi er talið vera 300 milljónir dollara, ríflega 37 milljarðar króna, sem þýðir að heildarvirði Mercedes Benz liðsins er tæplega 6.000 milljónir dollara eða hátt í 738 milljarðar króna. Þegar INEOS keypti þriðjungshlut í Mercedes Benz liðinu í desember 2020 var talið að kaupverðið væri í kringum 373 milljónir dollara. Miðað við það kaupverð var heildarvirði liðsins því ríflega 1.119 milljónir dollara, tæplega 137,6 milljarðar króna.

Ef litið er á ársreikninga Mercedes-Benz Grand Prix Limited, félagsins sem heldur utan um Formúlu 1 liðið, þá má sjá að veltan hefur aukist mikið að undanförnu. Árið 2020 þegar INEOS keypti sinn hlut voru rekstrartekjurnar 355 milljónir punda, 59 milljarðar króna á núverandi gengi, og rekstrarafkoman var 17,5 milljónir punda, hátt í 3 milljarðar króna í dag. Í ársreikningnum fyrir árið 2024 má sjá að rekstrartekjurnar voru 636 milljónir punda eða tæplega 105 milljarðar króna, rúmlega 79% aukning frá því sem var árið 2020. Þar að auki var rekstrarafkoman 160 milljónir punda sem eru 26,5 milljarðar króna á núverandi gengi.

Ársreikningurinn fyrir árið 2025 hefur ekki verið birtur en í Las Vegas kappakstrinum sem fór fram síðasta nóvember var haldið viðskiptaþing þar sem Toto Wolff greindi frá því að tekjur liðsins fyrir árið 2025 myndu vera hærri en 1 milljarður dollara, hátt í 123 milljarðar króna.

En það sem má lesa út úr þessu öllu saman er að á meðan velta Mercedes Benz liðsins hefur tvöfaldast á fimm árum, þá hefur heildarvirðið sexfaldast. Vinsældir Formúlu 1 byrjuðu að aukast um það leyti sem INEOS keypti sinn hlut árið 2020, þökk sé meðal annars Netflix þáttaröðinni Drive To Survive. Þar að auki má sjá að reksturinn sjálfur er orðinn arðbærari þar sem rekstrarafkoman jókst um 831% frá 2020 til 2024. Þá spilar það eflaust stóra rullu að Formúla 1 er lokuð keppni og einungis 11 lið sem taka þátt, eftirspurnin eftir Formúlu 1 liðum er mikil en framboðið takmarkað.

Cadillac borgaði 450 milljónir dollara til þess að komast inn í Formúlu 1

Frá árinu 2015 hefur fjöldi liða á hverju tímabili alltaf verið tíu. Það verður breyting á því núna í ár því General Motors mun tefla fram liði undir merkjum Cadillac. Formúlu 1 liðin þurftu að samþykkja inngöngu Cadillac í Formúlu 1 og General Motors þurfti einnig að greiða 450 milljónir dollara, 55 milljarðar króna, fyrir eins konar inngöngumiða í deildina (e. dilution fee).

Formúlu 1 liðin hafa undanfarin ár verið smeyk við það að hleypa fleirum liðum inn í keppnina af einföldum ástæðum. Ef fleiri sitja við borðið er hætta á því að kökusneiðin þeirra muni minnka. Liðin fá greitt til sín hluta af tekjum móðurfélags Formúlu 1. Sú fjárhæð er mismikil eftir liðum en nákvæm fyrirmæli um útdeilingu fjármunanna er að finna í Concorde-samningnum. Það er samningur sem er gerður á milli Alþjóðaakstursíþróttasambandins FIA, Formula One Group móðurfélagsins og Formúlu 1 liðanna. Níundi Concorde-samningurinn var undirritaður fyrir rúmlega ári síðan en hann gildir frá árinu 2026 til ársins 2030. Samningurinn er hins vegar ekki gerður opinber og því er óljóst hvernig skiptingin er á milli liða en talið er að stærstu liðin eins og Ferrari og Mercedes Benz fái hæstu greiðslurnar.

Á síðasta ári greiddi Formula One Group samtals X milljarða dollara til liðanna sem eru tæplega X milljónir dollara á hvert lið, eða um það bil X milljarðar króna. Ef þessari fjárhæð hefði hins vegar verið deilt með ellefu liðum en ekki tíu liðum þá hefðu liðin fengið X milljónir dollara hvert, X milljarðar króna. Af augljósum ástæðum vilja Formúlu 1 liðin auðvitað ekki minnka tekjurnar sínar en þau virðast horfa til þess að með því að bæta Cadillac inn í hópinn muni það auka virði Formúlu 1 og að kökusneiðin þeirra minnki ekki.

Mclaren fær 100 milljónir dollara á ári frá Mastercard

Undir lok síðasta sumars tilkynnti McLaren að frá og með tímabilinu 2026 muni greiðslukortafyrirtækið Mastercard vera aðalstyrktaraðili (e. Title Sponsor) liðsins. McLaren hefur ekki verið með aðalstyrktaraðila í meira en áratug, allt frá því að samstarfi þeirra við Vodafone lauk árið 2013. Talið er að Mastercard muni greiða McLaren rúmlega 100 milljónir dollara á ári, 12,3 milljarðar króna, fyrir nafnbótina. Samband McLaren og Mastercard er tiltölulega nýskeð þar sem Mastercard kom fyrst inn sem styrktaraðili McLaren árið 2024.

Síðustu ár hefur fjöldi liða með aðalstyrktaraðila fjölgað hratt. Árið 2022 var helmingur liða, fimm talsins, með aðalstyrktaraðila. Á þessu tímabili eru öll lið nema Cadillac með aðalstyrktaraðila. McLaren var því með seinni skipunum í þessari iðju en Zak Brown, framkvæmdastjóri Formúlu 1 liðs McLaren, hefur áður sagt að hann vildi vera varkár hvað þessi mál varðar. Varkárnin hefur tvímælalaust borgað sig því McLaren hefur náð að snúa við gengi sínu í Formúlu 1. Í tæpan áratug einkenndu vonbrigði og brösótt gengi McLaren liðið, en síðustu tvö tímabil hefur liðið unnið heimsmeistaratitil bílasmiða og á síðasta tímabil varð Lando Norris, ökumaður liðsins, heimsmeistari ökuþóra. Árangur McLaren upp á síðkastið hefur því eflaust komið sér að góðum notum fyrir McLaren við samningsborðið.

Ferrari, sem er sennilega þekktasta vörumerkið innan Formúlu 1, hefur verið með bandaríska tölvurisann HP sem sinn aðalstyrktaraðila frá árinu 2024. Talið er að HP greiði 90 milljónir dollara á ári fyrir það samstarf, ríflega 11 milljarðar króna. Árið 2022 varð bandaríska hugbúnaðarfyrirtækið Oracle aðalstyrktaraðili Red Bull liðsins. Sá samningur var til fimm ára og samtals virði hans er talið vera 500 milljónir dollara, eða 100 milljónir dollara á ári líkt og samstarf McLaren og Mastercard. Mercedes Benz liðið hefur borið nafn malasíska olíufélagsins Petronas frá því að Mercedes kom inn í Formúlu 1 árið 2010. Samstarf þeirra var framlengt árið 2022 en framlengingin tekur þó ekki gildi fyrr en núna í ár. Talið er að frá og með þessu tímabili muni Petronas greiða Mercedes 75 milljónir dollara á ári, í kringum 9 milljarðar króna.



Samfélagsmiðlar

facebook.com/utanvallar

linkedin.com/company/utanvallar

instagram.com/utanvallar

tiktok.com/@utanvallar

x.com/utanvallar