Samanburður á fjárhagsstöðu Breiðabliks og AC Virtus

Breiðablik mætir í kvöld AC Virtus í fyrri leik liðanna í umspili upp á sæti í Sambandsdeildinni. Þá er auðvitað kjörið tækifæri að athuga hvernig leikar standa utan vallar.
Rekstrartekjur

Rekstrartekjur Breiðabliks voru 738,1 milljón króna á síðasta ári sem er rúmlega þrettán sinnum meira en rekstrartekjur Virtus, en þær voru 50,6 milljónir króna.
Rekstrargjöld

Rekstrargjöld Breiðabliks voru rúmar 865 milljónir króna á síðasta ári á meðan rekstrargjöld Virtus voru tæpar 55 miljónir króna. Rekstrargjöld Breiðabliks voru því rúmlega fimmtán sinnum hærri.
Afkoma

Bæði liðin voru rekin með tapi á síðasta ári en tapið var þó öllu meira hjá Breiðabliki eða ríflega fimmtán sinnum meira.
Eignir

Eignir Breiðabliks námu 432,8 milljónum króna á síðasta ári en eignir Virtus voru töluvert lægri, rúmar 26,8 milljónir króna.
Handbært fé

Breiðablik átti margfalt meira handbært fé, rúmlega 56x meira, en Virtus.
Skuldir

Skuldir Breiðabliks voru 200,5 milljónir króna í árslok 2024 en skuldir Virtus voru tæpar 25 milljónir króna. Þá var skuldahlutfall Breiðabliks 46,3% en skuldahlutfall Virtus var 93,3%.
Eigið fé

Að lokum var eigið fé Virtus 1,8 milljón króna en eigið fé Breiðabliks var 130 sinnum meira eða tæpar 232,3 milljónir króna. Algjört brotabrot hjá Virtus í samanburði við Breiðablik.