Tekjur Keflavíkur vegna auglýsinga og samstarfsaðila tvöfaldast

Tekjur Keflavíkur vegna auglýsinga og samstarfsaðila tvöfaldast

Í ársreikningi Keflavíkur má sjá tekjur vegna auglýsinga og samstarfsaðila hækkuðu um 40 milljónir króna á milli ára, launahlutfallið hækkaði um nokkur prósentustig, handbært fé hækkaði um 10 milljónir króna og skuldir jukust um 11 milljónir króna.

Greinin var einnig birt á fotbolti.net



Rekstrartekjur

Rekstrartekjur Keflavíkur voru 383 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um 17,5 milljónir króna á milli ára, tæplega 5% hækkun. Stærsti hluti tekna Keflavíkur voru aðrar rekstrartekjur sem námu 270 milljónum króna, rúmlega 71% af rekstrartekjum Keflavíkur. Þessi tekjuliður er þó ekki sundurliðaður neitt frekar í ársreikningnum og því erfitt að segja til um hvað byggir þarna að baki. Næststærsti tekjuliðurinn eru svo auglýsingar og samstarfsaðilar sem voru 72 milljónir króna.

Það er áhugavert að sjá tekjur af auglýsingum og samstarfsaðilum hækka um hátt í 40 milljónir króna á milli ára. Mögulega hefur fjársterkur aðili farið að styrkja félagið. En þó með hliðsjón af því aðrar rekstrartekjur lækki um 31 milljón króna á milli ára þá gæti mögulega verið að hér sé verið að færa undirliði tekjuflokkanna á milli hvors annars.

Skipting rekstrartekna Keflavíkur 2021-2025.

Rekstrargjöld

Rekstrargjöld Keflavíkur voru 396 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um 56 milljónir króna á milli ára, tæplega 17% hækkun. Stærsti hluti útgjalda Keflavíkur fóru í laun, en þær greiðslur námu samtals 224 milljónum króna, 57% af útgjöldum Keflavíkur. Næststærsti rekstrarkostnaðurinn er annar rekstrarkostnaður sem nam 112 milljónum króna á síðasta ári.

Skipting rekstrargjalda Keflavíkur 2021-2025.

Launagreiðslur

Launagreiðslur Keflavíkur voru 223,9 milljónir króna á síðasta ári og hækkuðu um ríflega 30,6 milljónir króna á milli ára, eða sem um nemur 15,8%. Þetta er hins vegar ekki það mesta sem hefur Keflavík hefur greitt í laun síðustu fimm árin. Árið 2023 eyddi Keflavík 243,9 milljónir króna í laun, sem er það hæsta sem þessi útgjaldaliður hefur staðið í síðustu fimm árin.

Launahlutfall Keflavíkur var 58,4% árið 2025 og hækkaði um 5,6 prósentustig á milli ára. Yfir síðustu fimm árin hefur launahlutfall Keflavíkur verið að meðaltali 58,8%.

Afkoma

Knattspyrnudeild Keflavíkur var rekin með 12,3 milljón króna tapi á síðasta ári eftir að hafa verið rekið með 26 milljón króna hagnaði árið áður. Uppsöfnuð afkoma síðustu fimm ára nemur 15,7 milljónum króna. Þá er lítill munur á rekstrarafkomu (EBITDA) og afkoma Keflavíkur þar sem fjármagnsliðir síðustu ára hafa ekki vegið þungt í rekstrinum.

Eignir

Eignir Keflavíkur námu ríflega 62 milljónum króna í árslok 2025. Rúmlega helmingur eigna Keflavíkur er handbært fé, sem var 29,8 milljónir króna í árslok 2025. Næststærsta eign Keflavíkur eru svo viðskiptakröfur sem stóðu í 22,8 milljónum króna í lok síðasta árs.

Ef litið er á veltufjárhlutfal Keflavíkur má sjá að þeir eru í ágætis málum, en veltufjárhlutfallið var 119,7% í lok síðasta árs. Þess ber þó að gæta að það lækkaði úr 159,9% á milli ára, sem nemur 40,1 prósentustigalækkun.

Skipting eigna Keflavíkur 2021-2025.

Handbært fé

Handbært fé Keflavíkur hefur sveiflast þónokkuð síðustu fimm árin. Handbært fé stóð hæst í 35 milljónum króna árið 2021 en lækkaði hressilega árið eftir og náði svo lágpunkti árið 2023. Það árið stóð handbært fé í 7 milljónum króna í árslok. Síðustu tvö ár hefur handbært fé Keflavíkur hækkað og stóð í rúmlega 30 milljónum króna í árslok 2025.

Ef litið er á sjóðstreymisyfirlit Keflavíkur má sjá að handbært fé frá rekstri nam tæplega 10 milljónum króna. Þá voru fjárfestingahreyfingar smávægilegar, ríflega 300 þúsund, og fjármögnunarhreyfingar voru engar.

Sjóðstreymi Keflavíkur 2025.

Skuldir

Skuldir Keflavíkur stóðu í 44 milljónum króna í árslok 2025 og hækkuðu um tæplega þriðjung á milli ára. Þessi 11 milljón króna hækkun á skuldum Keflavíkur má rekja til 7 milljón króna hækkun á viðskiptaskuldum og 5 milljón króna hækkun á skuldum við tengda aðila. Þessi skuld við tengda aðila er skuld við aðalstjórn félagsins. Þá lækkuðu hins vegar aðrar skammtímaskuldir um ríflega 1 milljón króna.

Skuldahlutfall Keflavíkur hækkaði um 19,3 prósentustig á milli ára og var 70,9% í árslok 2025. Skuldahlutfall Keflavíkur var hæst árið 2023, þegar það var 90,7%, en síðustu fimm árin hefur skuldahlutfallið að meðaltali verið 66,2%.

Skipting skulda Keflavíkur 2021-2025.

Eigið fé

Eigið fé Keflavíkur nam 18 milljónum króna í lok síðasta árs og lækkaði um hátt í 13 milljónir króna á milli ára.

Skiping eigin fjár Keflavíkur 2021-2025.


Samfélagsmiðlar

facebook.com/utanvallar

linkedin.com/company/utanvallar

instagram.com/utanvallar

tiktok.com/@utanvallar

x.com/utanvallar