Urðu íslensk íþróttafélög af 3,7 milljörðum króna í fyrra?

Íslenskar getraunir hafa sérleyfi til þess að bjóða upp á íþróttaveðmál hér á landi. Þrátt fyrir það eiga flest íþróttaveðmál sér stað hjá erlendum veðmálasíðum. Hvaða þýðingu hefur það íslensk íþróttafélög?
Greinin var einnig birt á fotbolti.net
Hjá Íslenskum getraunum er hægt að heita á íþróttafélög þegar veðjað er á leiki. Rennur þá ákveðin fjárhæð til viðkomandi félags en á vef Íslenskra getrauna má svo sjá hversu háar fjárhæðir renna til félaganna. Árið 2024 runnu tæpar 318 milljónir króna til íslenskra íþróttafélaga.
Samkvæmt úttekt sem Viðskiptaráð Íslands gerði fyrir tæpu ári síðan um umgjörð veðmálastarfsemi á Íslandi var markaðshlutdeild Íslenskra getrauna í spilatekjum af íþróttaveðmálum talin vera 8% árið 2023. Það þýðir að 92% af spilatekjum í íþróttaveðmálum runnu til aðil sem hafa ekki starfsleyfi hér á landi, þar sem einungis Íslenskar getraunir hafa sérleyfi til að bjóða upp á íþróttaveðmál á Íslandi.

Við skulum því ímynda okkur þann veruleika að tekin væru upp starfsleyfi hér á landi í stað sérleyfa. En starfsleyfin væru þó einungis veitt með því skilyrði að hægt væri að heita á íþróttafélög með sama hætti og hjá Íslenskum getraunum. Í stað þess að 8% spilatekna af íþróttaveðmálum færu til innlendra aðila myndu núna allar spilatekjur, eða a.m.k. bróðurpartur, af íþróttaveðmálum renna til aðila sem væru með starfsleyfi hér á landi.
Ef áheit félaga myndu vaxa hlutfallslega í sama mæli og innlendar spilatekjur veðmálasíðna þá hefðu íslensk íþróttafélög fengið 3.997.990.088 krónur árið 2024 í formi áheita frá íþróttaveðmálum. Það var hins vegar ekki raunin. Árið 2024 runnu 318.239.207 krónur til íslenskra íþróttafélaga í formi áheita frá íþróttaveðmálum samkvæmt tölum frá Íslenskum getraunum. Það er þekkt stef að hver einasta króna skipti máli fyrir íslensk íþróttafélög, sum félög lepja nánast dauðann úr skel.
Því spyr maður sig, urðu íslensk íþróttafélög af 3.659.750.881 krónum á síðasta ári?

Lesendur geta sótt Excel skjalið hér að neðan og séð hvernig áheit til allra íþróttafélaga hefðu breyst.