Breytt fyrirkomulag hjá UTAN VALLAR

Breytt fyrirkomulag hjá UTAN VALLAR

Undanfarna mánuði hefur UTAN VALLAR birt greinar bæði hérna og á Fótbolti.net. Á dögunum var svo áskriftarleið Fótbolti.net sett í loftið en UTAN VALLAR greinarnar hjá Fótbolti.net munu framvegis einungis vera birtar þar. Tvisvar í mánuði verður birt UTAN VALLAR grein í áskriftarleið Fótbolti.net. Í júnímánuði fjallaði fyrri greinin um ársreikning KA og seinni greinin um ársreikning Stjörnunnar.

Á þessum vef mun ég þó ennþá birta þær greinar sem ég skrifa í Viðskiptablaðið. Undanfarna mánuði hef ég skrifað grein þar einu sinni í mánuði sem er svo birt á þessum vef viku seinna. Engin breyting verður á þessu fyrirkomulagi.

Þar að auki er ég með ýmsar hugmyndir á blaði um framþróun UTAN VALLAR sem ég næ vonandi að hrinda í framkvæmd ef tími gefst til.

Síðustu daga er ég líka búinn að fara í þrjú viðtöl sem ég hvet lesendur til þess að hlusta á.

Bikarinn kostar 70 milljónir og sigurvegarinn fær 6 milljarða - Vísir
Sævar Þór Sveinsson, ritstjóri Utan vallar, vann skýrslu um fjármálin á HM.
UTAN VALLAR: Yfirferð á ársreikningum - Fylkir í miklu brasi | Fotbolti.net
- Hægt er að horfa á þáttinn í mynd á Youtube Sævar Þór Sveinsson, umsjónarmaður Utan vallar, fór yfir ársreikninga liða úr Bestu- og Lengjudeildinni ásamt Kára Snorrasyni. Farið var yfir helstu tölur, sýnd gröf og rýnt í stöðu liðanna út frá ársreikningunum.
UTAN VALLAR: Rekstrartekjur KA jukust um 100 milljónir á síðasta ári | Fotbolti.net
<p>Í ársreikningi KA má sjá að rekstrartekjur hækkuðu um 100 milljónir króna, launahlutfallið var 46%, uppsafnaður hagnaður síðustu 5 ára eru 52 milljónir króna, félagið átti verðbréf fyrir 57 milljónir króna og skuldahlutfallið jókst. Hér verður kafað í ársreikninginn og litið á hvernig tölurnar hafa þróast síðustu fimm árin.</p>
UTAN VALLAR: Stjarnan rekin með 80 milljón króna tapi árið 2025 | Fotbolti.net
<p>Í ársreikningi Stjörnunnar má sjá að rekstrartekjur lækkuðu um 99 milljónir króna, launahlutfallið var 84%, afkoman var neikvæð um 80 milljónir króna, handbært fé hækkaði um 13 milljónir króna og skuldahlutfallið var 68% svo eitthvað sé nefnt. Stjarnan var með verstu afkomuna af öllum fótboltaliðum á Íslandi árið 2025. Knattspyrnudeildin var rekin með 80 milljón króna tapi eftir að hafa skilað 69 milljón króna hagnaði árið áður. Hér verður kafað í ársreikninginn og litið á hvernig tölurnar hafa þróast síðustu fimm árin.</p>


Samfélagsmiðlar

facebook.com/utanvallar

linkedin.com/company/utanvallar

instagram.com/utanvallar

tiktok.com/@utanvallar

x.com/utanvallar