Er fjárhagsleg gjá að myndast í íslenskri knattspyrnu?
Breiðablik og Víkingur hafa skipst á að sigra Bestu deild karla síðustu fimm tímabilin. Þessi tvö lið hafa síðan á víxl komist inn í Sambandsdeild UEFA síðustu þrjú tímabilin. Með þessum Evrópuævintýrum fylgir svo mikill peningur, í mörgum tilfellum eru Evróputekjurnar margfalt hærri en velta annarra fótboltaliða á Íslandi.
Eignir Breiðabliks og Víkings svipað miklar og hjá hinum 10 liðunum í Bestu deildinni
Í þessari grein verða ársreikningar Breiðabliks og Víkings bornir saman við ársreikninga þeirra liða sem kepptu í Bestu deild karla sumarið 2025. Það skal þó hafa í huga að ársreikningar eru gerðir fyrir alla knattspyrnudeildina og innihalda því einnig tölur fyrir meistaraflokk kvenna og yngri flokka. Samanburðurinn er því ekki fullkominn, en gefur þó einhverja mynd af stöðu mála.
Tekjur og útgjöld Breiðabliks og Víkings eru töluvert lægri en hjá hinum 10 liðunum. En það sem er eftirtektarvert er munurinn á afkomunni. Samanlögð afkoma Breiðabliks og Víkings frá 2022-2025 eru 766 milljónir króna. Á þessu sama tímabili er samanlögð afkoma hinna 10 liðanna 242 milljónir króna. Afkoman er semsagt 525 milljónum krónum hærri hjá Breiðabliki og Víkingi, eða rúmlega 217% hærri. Þessi munur á afkomu sést vel í efnahagsreikningunum hjá liðunum.
Í árslok 2025 námu samanlagðar eignir Breiðabliks og Víkings 1.129 milljónum króna. Hjá hinum 10 liðunum voru samanlagðar eignir 1.176 milljónir króna. Eignir hinna liðanna voru því einungis 47 milljónum krónum hærri, eða rúmlega 4% hærri.
Skuldir Breiðabliks og Víkings námu samtals 338 milljónum króna en skuldir hinna 10 liðanna voru samtals 483 milljónir króna í lok síðasta árs. Skuldir hinna liðanna voru þar af leiðandi 145 milljónum krónum hærri, eða tæplega 43% hærri.
Þá var eigið fé Breiðabliks og Víkings 791 milljón króna í árslok 2025 en eigið fé hinna 10 liðanna var 693 milljónir króna. Eigið fé Breiðabliks og Víkings var því 98 milljónum krónum hærra, eða sem um nemur 12%.
Athugun Samkeppniseftirlitsins á Bestu deildinni
En er samkeppnisstaðan í íslenskri knattspyrnu að skekkjast? Ef Samkeppniseftirlitið fengi að nýta hluta af 30 milljón króna viðbótarfjárveitingunni sem þeir fengu á dögunum þá er eitt mælitæki sem kæmi til greina. Það er HHI-samþjöppunarstuðullinn sem mælir samþjöppun og samkeppni á tilteknum markaði. Gildi stuðulsins liggur á milli 0 og 10.000, og því hærra sem gildið er því meiri er samþjöppunin og þar af leiðandi er samkeppnin takmörkuð.
Í þessum samanburði verður litið til skandinavísku deildanna og topp fimm deildanna. Ef miðað er við síðustu fimm tímabil þá er HHI-stuðull Bestu deildarinnar 5200. Þrjár deildir eru með hærri HHI-stuðul. Síðustu fimm tímabil hafa einungis Breiðablik og Víkingur unnið Bestu deildina. Þær deildir sem hafa lægri HHI-stuðul eru með þrjú eða fleiri lið sem hafa unnið síðustu fimm tímabilin. Allt virðist stefna í það að annaðhvort Breiðablik eða Víkingur muni vinna deildina aftur í ár, eða það vilja hinir svokölluðu sérfræðingar meina. HHI-stuðullinn mun því ekkert skána ef þær spár ganga eftir.
Besta deildin með næstlægsta Gini-stuðulinn
Það væri líka hægt að nota Gini-stuðulinn til þess að mæla hversu jöfn Besta deildin er. Gini-stuðullinn er venjulega notaður til þess að mæla ójöfnuð tekna. Það er hins vegar líka hægt að nýta hann til þess að mæla ójöfnuð í stigasöfnun í íþróttum. Stuðullinn er á skalanum 0-1 og því hærri sem hann er því ójafnari er stigasöfnunin. Ef litið er á meðaltal Gini-stuðulsins síðustu fimm tímabilin þá er það næstlægst hjá Bestu deildinni. Einungis danska úrvalsdeildin er með lægri Gini-stuðul. Það þarf þó að hafa í huga að leikjafjöldinn er mismunandi í þessum deildum, en það hefur áhrif á Gini-stuðulinn. Því fleiri leikir sem eru spilaðir, því meira getur bilið orðið í stigum á milli liða og því líklegra er að Gini-stuðullinn sé hærri.
Breiðablik og Víkingur fá mörg hundruð milljónir í Evróputekjur
Breiðablik og Víkingur hafa fundið gullgæs sem hefur gefið þeim fjárhagslega yfirburði gagnvart öðrum fótboltaliðum á Íslandi. Vissulega endar peningurinn með einum eða öðrum hætti í íslenska fótboltahagkerfinu, til að mynda þegar leikmannakaup eiga sér stað. Í sjóðstreymisyfirliti Víkings fyrir árið 2025 má sjá að félagið eyddi 47 milljónum króna í leikmannakaup. Þetta er þó einungis brot af þeim fjárhæðum sem þessi tvö lið hafa fengið fyrir Evrópuævintýrin sín.
Breiðablik fær eitthvað í kringum 700 milljónir króna fyrir sitt Evrópuævintýri á síðasta ári, hluti af því er þó greitt á þessu ári. Í ársreikningi Víkings má svo sjá að 230 milljónir króna voru tekjufærðar vegna þátttöku í Evrópukeppni árið 2025 og 837 milljónir króna árið 2024. Þó svo eitthvað af þessum peningi endar hjá öðrum fótboltaliðum á Íslandi þá eru það einungis brauðmolar.
Það skal þó ekki sagt að önnur lið eigi eitthvað tilkall í þessa peninga. Breiðablik og Víkingur unnu sér inn þennan pening sjálf og önnur félög eiga ekki rétt á neinni ölmusu vegna þess. Leiðinn inn í Evrópukeppnir UEFA varð greiðari með tilkomu Sambandsdeildarinnar árið 2021. Breiðablik og Víkingur náðu einfaldlega árangri á réttum tíma.
Tveggja turna tal í Bestu deildinni
Það er engin nýlunda í íslenskri knattspyrnu að lið eigi nokkur ár þar sem þau virðast vera óstöðvandi. Gott dæmi er FH sem endaði í 1. eða 2. sæti frá 2003-2016. Félagið var algjör risi um margra ára skeið en hefur mátt muna fífil sinn fegri undanfarin misseri.
Það sem gerir stöðu Breiðabliks og Víkings öðruvísi frá öðrum gullaldarliðum eru Evrópupeningarnir. Það félag sem var tekjuhæst á síðasta ári, á eftir Breiðabliki og Víkingi, var FH. Velta þeirra árið 2025 voru 625 milljónir króna. Það er samt sem áður minni peningur en Breiðablik fær fyrir sitt Evrópuævintýri í ár.
Eins og staðan er í dag þá eru Breiðablik og Víkingur með sterkustu leikmannahópanna. Þessir tveir turnar geta líka greitt bestu launin og eytt mestum pening í leikmenn. Þar af leiðandi eru þessi tvö lið í reynd með fyrsta valrétt á öllum leikmönnum á Íslandi.
Ef Breiðablik og Víkingur halda áfram að skiptast á því að sigra Besta deildina þá þyrfti kannski KSÍ að byrja veita bronsverðlaun, af því fjárhagslegir yfirburðir Breiðabliks og Víkings munu bara aukast.