Margar milljónir undir í maraþonhlaupum

Margar milljónir undir í maraþonhlaupum

Þann 26. apríl síðastliðinn var stórum áfanga náð í hlaupaheiminum þegar Keníumaðurinn Sabastian Sawe hljóp fyrstur manna heilt maraþon á undir tveimur klukkustundum í keppni. Lokatíminn hjá Sawe var 1:59:30 en í mörg ár hafa áhangendur íþróttarinnar beðið í ofvæni eftir því að þessum áfanga sé náð í maraþoni.

Greinin var fyrst birt í tölublaði Viðskiptablaðsins þann 2. september 2026.



Fyrir tæplega áratug síðan kynnti Nike til sögunnar Breaking2 verkefnið þar sem markmiðið var að brjóta þennan tveggja klukkustunda múr í maraþonhlaupi. Þrír hlauparar, þar á meðal Eliud Kipchoge, tókust á við þessa áskorun á kappakstursbrautinni í Monza á Ítalíu þann 6. maí 2017. Þeir klæddust að sjálfsögðu allir glænýjum skóm sem Nike hannaði sérstaklega til þess að brjóta múrinn. Kipchoge hljóp á 2:00:25 og markmiðinu var því ekki náð. Hann sló hins vegar þáverandi heimsmetið í maraþonhlaupi. Hlaupið sjálft var þó ekki löglega vottað, þar sem hann fékk margskonar aðstoð, og því var metið ekki tekið gilt.

Tveimur árum seinna reyndi Kipchoge svo aftur við heimsmetið. Í þetta sinn stóð INEOS, fyrirtæki Íslandsvinarins Jim Ratcliffe, fyrir áskoruninni en hlaupið fór fram í Vínarborg í Austurríki. Kipchoge hljóp á 1:59:40 og var því markmiðinu náð en, líkt og með fyrra hlaupið, þá var hlaupið ekki löglega vottað og heimsmetið því ekki gilt.

Sabastian Sawe náði náði hins vegar þessum merka áfanga í Lundúnarmaraþoninu fyrr á þessu ári, en hann var þó ekki einn um hituna því Eþíópíumaðurinn Yomif Kejelcha hljóp ellefu sekúndum hægar og hljóp því einnig maraþonið á undir tveimur klukkustundum. Silfurhafar eiga það oft til að falla í skugga á sigurvegaranum og þó afrekið hjá Kejelcha sé ekki síðra en hjá Sawe þá er verðlaunaféð sem Kejelcha fær töluvert minna.

Fékk 59 milljónir króna fyrir heimsmetið

Að slá heimsmetið hefur heldur betur borgað sig fyrir Sawe. Verðlaunaféð sem hann fékk fyrir það að sigra maraþonið voru 55 þúsund dollarar, ríflega 9 milljónir króna. Þar að auki fékk hann þrjár mismunandi bónusgreiðslur frá mótshöldurum.

Fyrsta bónusgreiðslan var fyrir það að hlaupa á minna en tveimur klukkustundum og tveimur mínútum. Sú bónusgreiðsla var stærst, en hann fékk 150 þúsund pund fyrir það sem eru tæplega 25 milljónir króna. Önnur bónusgreiðslan var fyrir það að enda í 1. sæti ásamt því að slá brautarmetið, sem var 2:01:25 tími Kelvin Kiptum frá árinu 2023. Upphæð þessarar bónusgreiðslu nam 25 þúsund pundum, rúmlega 4 milljónir króna. Þriðja og síðasta bónusgreiðslan sem Sawe fékk var svo fyrir það að enda í 1. sæti og slá heimsmet. Fyrir það fékk hann 125 þúsund pund, hátt í 21 milljón króna. Heilt yfir fékk hann því 355 þúsund pund frá mótshöldurum sem gera ríflega 59 milljónir króna.

Við heimkomuna til Keníu fór fram athöfn til þess að heiðra Sawe. Þar gaf forseti Keníu honum 8 milljónir keníaskildinga, rétt undir 8 milljónir króna, og einnig númeraplötu með lokatímanum hans. Þar að auki verður að telja líklegt að hann hafi einnig fengið einhverjar bónusgreiðslur frá sínum samstarfsaðilum fyrir þetta afrek.

Ein milljón evra ef heimsmet er slegið

Stórmótin í maraþonhlaupi eru maraþonin í Berlín, Boston, Chicago, Lundúnum, New York borg, Sydney og Tókýó. Verðlaunaféð fyrir það að sigra Lundúnarmaraþonið er næstlægst af þessum sjö maraþonum. Það er einungis Berlínarmaraþonið sem er með lægra verðlaunafé fyrir sigurvegarann. Þá ber að nefna að á þessari öld hefur heimsmetið í maraþonhlaupi karla verið slegið ellefu sinnum, þar af átta sinnum í Berlínarmaraþoninu. Næsta stórmót er einmitt Berlínmaraþonið sem fer fram síðustu helgina í september. Sabastian Sawe tekur þátt í því hlaupi og ætlar að reyna sitt allra besta til þess að slá heimsmetið sitt. Þó Berlínarmaraþonið sé eflaust besta hlaupið til þess að setja nýtt heimsmet, þá hafa hlauparar ekki úr miklu verðlaunafé að moða í því hlaupi líkt og í öðrum.

Hæsta verðlaunaféð af þessum sjö maraþonhlaupum er í Bostonmaraþoninu, sem jafnframt er elsta maraþonhlaup í heiminum. Þar fær sigurvegarinn 150 þúsund dollara, tæplega 19 milljónir króna. Silfurhafinn í hlaupinu fær svo helmingi lægri upphæð, 75 þúsund dollara, sem er þó meira en sigurvegarinn í Lundúnum fær. Gott brons er silfri betra segir orðatiltækið, í peningum talið er einhver sannleikur í því þar sem 3. sætið í Boston fær meiri pening en 2. sætið í Berlín, Lundúnum og Tókýó.

Auk þess að veita hlaupurum verðlaunafé fyrir það sæti sem þeir enda í, þá bjóða mörg hlaup upp á bónusgreiðslu fyrir það að slá brautarmetið eða þá jafnvel heimsmetið. Til að mynda í maraþoninu í Chicago fá hlauparar 50 þúsund dollara fyrir það að setja brautarmet. Stærstu bónusgreiðsluna er þó að finna í maraþoninu í Valencia. Þar getur hlaupari fengið eina milljón evra, að því gefnu að hann setji heimsmet í hlaupinu.

Verðlaunafé í hlaupum á Íslandi töluvert lægra

Hér á Íslandi er verðlaunafé í hlaupum töluvert minna en í þeim erlendu hlaupum sem hafa verið nefnd hér á undan. Íslensku hlaupin eru þó töluvert minni í sniðum en stórmótin sem voru nefnd og því ekki að ástæðalausu að verðlaunaféð sé minna.

Hæsta verðlaunaféð er í Vecct Mílunni sem fór fram í fyrsta sinn í lok aprílmánaðar á þessu ári á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði. Þar fékk sigurvegarinn 250 þúsund krónur, 2. sætið 150 þúsund krónur og 3. sætið 100 þúsund krónur. Verðlaunapotturinn var því samtals 500 þúsund krónur í hverjum flokki.

Puffin Run hlaupið í Vestmannaeyjum fylgir fast á hæla þeirra með 495 þúsund króna verðlaunapott. Verðlaunaféð fyrir 1. sætið þar er 220 þúsund krónur, nokkuð lægra en í Vecct Mílunni, en hins vegar er verðlaunaféð fyrir 2. og 3. sætið hærra. Fyrir 2. sæti í Puffin Run er verðlaunaféð 165 þúsund krónur og 110 þúsund krónur fyrir 3. sætið.

Tvö þekktustu hlaupin á Íslandi eru þó sennilega Laugavegshlaupið og Reykjavíkurmaraþonið. Verðlaunaféð þar er nokkuð lægra en í hinum tveimur fyrrnefndu hlaupunum. Í Laugavegshlaupinu er verðlaunapotturinn 300 þúsund krónur í hverjum flokki og 245 þúsund krónur í Reykjavíkurmaraþoninu. Það er þó hægt að næla sér í smá bónusgreiðslu í Reykjavíkurmaraþoninu sem hljóðar upp á 100 þúsund krónur, að því gefnu að hlaupari slái brautarmetið. Það afrekaði þó enginn hlaupari það að setja brautarmet í því votviðri sem var á síðustu Menningarnótt.



Samfélagsmiðlar

facebook.com/utanvallar

linkedin.com/company/utanvallar

instagram.com/utanvallar

tiktok.com/@utanvallar

x.com/utanvallar